Mótaskrá STÍ í kúlugreinum er komin út fyrir 2022-2023.
Hægt er að nálgast hana hér: 2023 – SKOTÍÞRÓTTASAMBAND ÍSLANDS (sti.is)
Mótaskrá STÍ í kúlugreinum er komin út fyrir 2022-2023.
Hægt er að nálgast hana hér: 2023 – SKOTÍÞRÓTTASAMBAND ÍSLANDS (sti.is)
Fyrstu laserbyssurnar eru komnar til okkar en tvær aðrar eru væntanlegar í nóvember. Þetta eru vönduð tæki af gerðinni Feinwerkbau og notast þau við RedDot laserbúnað frá fyrirtækinu Disag.
Rifflarnir eru með vönduðu dioptersigtum sem er auðvelt að stilla. Stillanlegan keppnisgikk, ásamt stillanlegum kinnpúða og skepti. Þessar byssur eru hannaðar fyrir yngri kynslóðina og engir virkir hlutir eru í henni annað en gikkur og sigti.
Skotsvæðið er lokað virka daga frá kl. 09:00 - 13:00 vegna æfinga lögreglu. Þetta fyrirkomulag verður út nóvember.
Við viljum minna félagsmenn á þjálfaramenntun ÍSÍ, sérstaklega þá sem hafa áhuga á því að koma að þjálfun hjá okkur.
Við erum byrjuð að reka öflugt Ungmennastarf í skotíþróttum og eitt af okkar leiðarljósi í því starfi er að allir þjálfarar séu með þjálfaramenntun frá ÍSÍ ásamt þjálfaramenntun sérsambandsins okkar, Skotíþróttasamband Ísland (STÍ).
Skráning hófs í ungmennastarfið fyrir helgi og hefur skráning farið framúr björtustu vonum í ungliðahópnum (6-14 ára). Þar er orðið fullt en ennþá er laust í unglingaflokki (15-20 ára). Við munum þó ekki byrja allveg strax í unglingaflokki þar sem aðstaðan er ekki tilbúin en við eigum von flottri loftaðstöðu mjög bráðlega.
Við byrjum æfingar með ungliða mánudaginn 5. september kl 17:00 í íþróttahúsinu á Hvolsvelli og verður svo til skiptist á Hvolsvelli og Hellu með æfingar á þessum tíma.
Bríet Berndsen keppti fyrir hönd félagsins á landsmóti í skeet um helgina á Akranesi. Bríet keppti í unglingaflokki á sínu fyrsta móti og stóð sig mjög vel. Vann hún gull í unglingaflokki stúlkna.
Bríet byrjaði að æfa skeet hjá félaginu fyrir skemmstu og er mjög efnileg í þeirri grein og á hún framtíðina fyrir sér í greininni.
Félagið eignaðist nýja æfinga loftskammbyssu af gerðinni Hammerli AP-20 fyrir skemmstu.
Byssan hentar sérstaklega vel yngstu iðkendunum, eða frá 15 ára aldri þar sem þetta er loftbyssa.
Byssan er með stillanlegu skepti í stærðum frá S til L og er hægt að breyta því þannig að það henti fyrir vinstri eða hægri hendi.
Loftkúturinn er nettur og er hægt að láta hann snúa lóðrétt eða lágrétt. Með því að hafa hann lóðrétt er léttara að halda byssunni fyir yngri iðkendur.
Skotíþróttafélagið Skyttur er að skoða aðstöðu í samvinnu við Rangárþing-eystra á Hvolsvelli fyrir loftgreinar. Verður þá hægt að halda æfingar í loftskammbyssu og loftriffillgreinum ásamt mögulega sömu greinum með laser. Hentar það einstaklega vel með ungmennastarfi þar sem þessar greinar eru hentugar fyrir ungmennagreinar. Félagið hefur til umráða nokkrar skotgildrur fyrir pappírsskífur og 4 rafeinda skotgildrur sem eru ætlaðar fyrir loftgreinar.
Voru tveir vinnudagar haldnir um og eftir páska þar sem uppsláttur fyrir fyrsta skref í riffillhúsi var kláraður og steypa pöntuð. Mætti hópur galvaskra félagasmanna báða dagana. Einnig voru leirdúfuvélar teknar niður til að gera klárt fyrir nýju vélarnar á skeet vellinum.
Næsta skref er að halda áfram að slá upp fyrir sökkli og taka leirdúfuhúsin í gegn, mála og þrífa ásamt því að yfirfara völlinn allan
Spennandi tímar framundan
Skipt verður um kóða á talnalás að hliði og félagshúsi 15. apríl næstkomandi. Þeir sem hafa greitt árgjöld fyrir 2022 fá sendan nýjan talnakóða í tölvupósti.