Samheiti yfir kúlugreinar
Stórum áfanga var náð á þriðjudag þegar platan á riffillhúsinu var steypt. Núna getur riffillvöllur aftur farið í fyrra horf eftir að hafa verið mikið framkvæmdasvæði síðasta árið og ekki nýst sem skyldi.
Næstu dagar fara í að koma upp borðum á plötunni og laga til í kringum plötuna. Erum við hrikalega ánægðir með að þetta hafðist og þökkum þeim félagsmönnum sem lögðu hönd á plóg til þess að þetta tækist.