Skothús

Öryggi í skothúsinu

Öryggisflagg skal alltaf vera í byssunni nema á meðan verið er að skjóta. Sýnileikavesti er skylda þegar farið er út á braut. Áður en farið er fram fyrir öryggislínuna skal stöðva skotæfingu, tryggja allar byssur og kveikja aðvörunarljós. Enginn má handleika byssur meðan ljósin loga.

Lesa öryggisreglur skothússins →

Skothúsið á Geitasandi er ætlað kúlugreinum, bæði rifflum og skammbyssum. Húsið er 92 fermetrar með 10 skotbásum, 1,6 metra breiðum hverjum.

Fjölbreytt aðstaða

Hægt er að hafa þungt skotborð á hverjum bás eða færa borðið til hliðar fyrir liggjandi og standandi skotfimi. Skotlúgur má opna að fullu, í borðhæð eða við gólf. Aðstaðan nýtist því meðal annars fyrir þrístöðu, borðskotfimi og liggjandi eða standandi greinar.

Aðgangur og áskrift

Félagsmenn geta keypt áskrift að húsinu. Áskrifendur með virkan rafrænan aðgang geta komið sjálfir til æfinga alla daga kl. 08:00–23:00. Húsið er myndavélavaktað og gerð er krafa um góða umgengni. Áskrifendur skuldbinda sig til að fylgja bæði umgengnisreglum og öryggisreglum.

Sjá verðskrá fyrir gjöld. Hafið samband við félagið um möguleika á stökum aðgangi.

Búnaður og öryggi

Í húsinu eru heyrnarskjól og stuðningspúðar fyrir iðkendur. Þegar skotstjóri er á staðnum er hægt að leigja riffil gegn gjaldi. Uppbygging hússins og skotbrauta heldur áfram.

Kynnið ykkur öryggisreglur skotsvæðisins og reglur sem eru birtar í húsinu áður en æfing hefst.

Finna Geitasand · Æfingasvæðið

Skotlúgur í skothúsinu
Skotlúgur í skothúsinu
Skotbásar í skothúsinu
Skotbásar í skothúsinu
Hurðir í skothúsinu
Hurðir í skothúsinu
Hlekkur á viðburð