Merkið

Merki Skyttna var hannað af Árna Páli Jóhannssyni, hönnuði og listamanni sem er einn af stofnendum félagsins. Árni átti einnig hugmyndina að nafninu Skyttur.

Merkið sýnir eldfjallið Heklu eins og það blasir við frá Geitasandi. Hefðbundnir skotmarkshringir eru yfir miðju merkisins og litirnir tengjast litum sveitarfélaganna í Rangárþingi. Þannig vísar merkið bæði til íþróttarinnar og kennileita á starfssvæði félagsins.

Ártalið 2008 vísar til ársins þegar hugmyndin að félaginu kviknaði og það var stofnað óformlega. Formlegur stofnfundur var haldinn snemma árs 2009. Efst í merkinu stendur nafnið SKYTTUR.

Skoða merki félagsins

Merki Skyttna
Merki Skyttna
Hlekkur á viðburð