Píludeild Skyttna er einstaklega ánægð og þakklát fyrir að hafa hlotið samfélagsstyrk Krónunnar að þessu sinni.
Krónan úthlutaði á dögunum samtals 8 milljónum króna til 17 frábærra verkefna víðs vegar um landið. Verkefnin eiga það sameiginlegt að stuðla að uppbyggingu og efla samfélagið, meðal annars með því að skapa börnum og ungmennum fleiri tækifæri til hreyfingar, þátttöku og samveru.
Það er okkur hjá Skyttum mikill heiður að vera á meðal þeirra verkefna sem Krónan kýs að styðja. Styrkurinn kemur sér afar vel fyrir píludeildina og mun nýtast til að efla starfið og skapa enn betri aðstæður fyrir iðkendur okkar.
Við viljum koma á framfæri innilegu þakklæti til Krónunnar fyrir stuðninginn og fyrir að leggja sitt af mörkum til íþrótta- og æskulýðsstarfs í nærumhverfinu.
Takk kærlega fyrir stuðninginn, Krónan! 💛

Á mynd: Guðmundur Jónsson, verslunarstjóri Krónunnar og Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnastjóri sálfbærnimála Krónunnar. Ásamt ungum og efnilegum strákum í pílunni þeir Snorri Þór Jóhannsson, Sölvi Marinó Guðmundsson og Nökkvi Dagur Stefánsson.


