Píla

Píludeild Skyttna · Æfingar · Mót · Félagsstarf

Fara á dart.is ↗

Píludeild Skyttna er einstaklega ánægð og þakklát fyrir að hafa hlotið samfélagsstyrk Krónunnar að þessu sinni.

Krónan úthlutaði á dögunum samtals 8 milljónum króna til 17 frábærra verkefna víðs vegar um landið. Verkefnin eiga það sameiginlegt að stuðla að uppbyggingu og efla samfélagið, meðal annars með því að skapa börnum og ungmennum fleiri tækifæri til hreyfingar, þátttöku og samveru.

Það er okkur hjá Skyttum mikill heiður að vera á meðal þeirra verkefna sem Krónan kýs að styðja. Styrkurinn kemur sér afar vel fyrir píludeildina og mun nýtast til að efla starfið og skapa enn betri aðstæður fyrir iðkendur okkar.

Við viljum koma á framfæri innilegu þakklæti til Krónunnar fyrir stuðninginn og fyrir að leggja sitt af mörkum til íþrótta- og æskulýðsstarfs í nærumhverfinu.

Takk kærlega fyrir stuðninginn, Krónan! 💛

Á mynd: Guðmundur Jónsson, verslunarstjóri Krónunnar og Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnastjóri sálfbærnimála Krónunnar. Ásamt ungum og efnilegum strákum í pílunni þeir Snorri Þór Jóhannsson, Sölvi Marinó Guðmundsson og Nökkvi Dagur Stefánsson.

 

Hlekkur á viðburð
ÆfingarTímar, aldurshópar og upplýsingar
PílusalurAðstaða og reglur píludeildar
Mót og viðburðirYfirlit og skráning
Pílusamband ÍslandsFréttir, mót og upplýsingar á dart.is ↗

Næstu viðburðir – píla

Nýjustu fréttir Skyttna

Píla

29.10.2026

Fyrsta U-17 Pílumót 21.nóvember

Nú er komið að næstu kynslóð pílukastara! Skyttur halda U-17 pílumót í pílusalnum Rísinu, Hvolsvegi 33 á Hvolsvelli, laugardaginn 21.…