Námskeiðið eru 4 kvöld, miðvikudaginn 19. fimmtudaginn 20. mánudaginn 24. og miðvikudaginn 26. júlí en æfingarnar eru frá kl. 18:00 til 20:00 á skotíþróttasvæðinu Geitasandi
Farið verður yfir grunnatriði í halgabyssugreinum með áherslu á Skeet. Skeet er ólympísk skotgrein og verður farið í grunnatriði í skotfimi og fá þáttakendur leiðsögn við skotfimina hjá þjálfurum.
Æfð verða grunnatriði í skeet skotfimi, tækniatriði, staða og annað sem viðkemur íþróttinni
Innifalið eru skot og lán á tvíhleypu.
Þátttakendur geta mætt á opin æfingakvöld á þriðjudögum eftir námskeiðið þegar þjálfara eru á svæðinu.
Hámarksfjöldi er 8 á námskeiðið svo það er takmarkað pláss.
Þjálfarar: Arnór Óli Kristinsson, Emil Kárason
Gestaþjálfari verður á námskeiðinu líka