Skip to main content
Forsíða
Skotíþróttafélagið Skyttur

Main navigation

  • Um félagið
    • Merkið
    • Stjórn
    • Fundargerðir
    • Leyfi
    • Verðskrá
    • Gerast félagsmaður
    • Búningar
    • Hafa samband
  • Starfsemi
    • Ungmennastarf
    • Æfingasvæðið
    • Allir viðburðir
    • Mótaskrá
    • Æfingaáætlun
    • Bogfimi
  • Fróðleikur
    • Skotgreinar
    • Styrktaraðilar
    • Hreindýrapróf
    • Íþróttasambönd
    • Spjallsvæðið
    • Önnur félög
  • Lög og reglur
    • Lög félagsins
    • Öryggisreglur
    • Siðareglur
    • Persónuverndarstefna
    • Byssuleyfi

Ungmennastarf

Skotíþróttafélagið Skyttur er að koma á fót ungmennastarfi í skotíþróttum og skiptist það í tvo flokka: Unglingastarf og ungliðastarf.
Hægt er að skrá sig í ungmennastarfið á sportabler

Unglingar flokkast þeir sem hafa náð 15 ára aldri og mega því æfa skotfimi með ákveðnar gerðir af byssum og keppa á mótum á vegum Skotíþróttasambands Íslands (STÍ). Þeir mega stunda loftskammbyssu, loftriffill, enskan riffill, þrístöðu, skeet og svo BR50. Er þetta í samræmi við núverandi löggjöf á Íslandi. Stefnt verður að reglubundnum æfingum þar sem þessar greinar eru æfðar og kennt er samkvæmt því efni sem ISSF hefur gefið út. Loftgreinarnar eru innigreinar og er hægt að stunda allan ársins hring en haglagreinarnar eins og skeet eru útigreinar og er hægt að æfa á vorin og fram á haustið.

Ungliðar kallast þeir sem eru undir 15 ára aldri og mega ekki nota hefðbundnar byssur. Þess í stað notum við svokallaðar rafbyssur sem líkja eftir loftbyssum. Eru þetta samskonar byssur og við notum í loftgreinunum, nema að þær eru ekki virkar en nota laser sendi í stað skota og skotið er í móttakara sem nemur hvar "skotið" hittir og birtist það þá á þar til gerðum skjá. Það er því hægt að æfa grunnatriðin í skotfimi á skammbyssu og riffill, hvernig á að miða og allar öryggisreglur í kringum íþróttina. Æfingarnar eru miðaðar að þeim aldri iðkenda og verða leikir og léttar æfingar í blandi við skotkennsluna.

Ungliðar skiptast í tvo flokka: 6-9 ára og svo 10-14 ára. Æfingar eru einu sinni í viku í loftsal félagsins undir Krónunni á Hvolsvelli.

Ungliðastarf
Rafbyssa

Þjálfarar hjá félaginu hafa það að markmiði að mennta sig í kringum skotgreinararnar. Það er stefna félagsins að þjálfarar hafi tekið þjálfarastig hjá ÍSÍ í samræmi við viðmið ÍSÍ um fyrirmyndarfélög. Einnig er markmiðið að þjálfarar félagsins öðlist þjálfararéttindi hjá alþjóða skotsambandinu (ISSF)

Þjálfarar hjá skotfélaginu í ungmennastarfi

 Nafn Stig ÍSÍ Stig ISSF Skotgreinar
Magnús Ragnarsson 2. stig N/A AP60, AR60, FR60PR, Skeet
Viðar Rúnar Guðnason N/A N/A AP60, AR60, FR60PR
Emil Kárason N/A N/A Skeet
Arnór Óli Ólafsson N/A N/A Skeet

 

 

Félagið heldur úti ungmennastarfi og hefur verið að koma sér upp öflugum búnaði

Íþróttasjóður hefur styrkt félagið við uppbyggingu á unglingastarfi í haglabyssugreinum og munum við einbeita okkur að skeet íþróttinni.

Önnur skotfélög sem hafa verið með reglubundið ungmennastarf eru Skotdeild Keflavíkur en þau hafa verið í samstarfi með grunnskólum í unglingaflokkum. Hafa þeir þá verið með skotfimi sem valfag.

Skotfélag Kópavogs hefur verið með unglinga og ungliðastarf með góðum árangri og höfum við fengið góða aðstoð frá þeim við að koma ungmennastarfinu okkar af stað, en þeir hafa notað rafbyssur með góðum árangri

Skjöl
Leyfi til æfinga fyrir 15-20 ára (356.94 KB)

Á döfinni

Áskriftir / æfingagjöld

Sportabler

Skotíþróttafélagið Skyttur
Skotíþróttafélagið Skyttur kt. 420409-1330 - Geitasandi, 850 Hella - Reikningsnúmer: 182-26-4204 - skotfelag[hjá]skyttur.is
Höfundarréttur © Magnús Ragnarsson.. Öll réttindi áskilin.
Powered by Drupal