Aðalfundur var haldin 5. mars síðastliðinn og mættu 9 manns á fundinn. Var hann einnig í beinu streymi á Teams.
Bjarki Eiríksson og Bríet Berndsen gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og er þeim þökkuð vel unnin störf.
Stjórnarkjör fór fram samkvæmt venju og koma ný inn í aðalstjórn Jón Ægir Sigmarsson, og Rakel Rún Karlsdóttir kemur inn sem varamaður. Aðrir í stjórn gáfu kost á sér aftur og eru voru því endurkjörin.
Stjórn skipa því Magnús Ragnarsson, formaður, Haraldur Gunnar Helgason, Jóhann Þórir Jóhannsson, Valur Gauti Ragnarsson, Jón Ægir Sigmarsson og varamenn Viðar Rúnar Guðnason og Rakel Rún Karlsdóttir.
Á fundinum var árgjald ákveðið 15.000 kr.
Annars má finna fundargerð aðalfundar undir fundargerðum á síðunni.