Félagið fór í það að kaupa 6 notaðar loftbrautir fyrir loftsalinn. Til stendur að stækka hjá okkur og fara næstu vikur í að undirbúa það. Brautirnar eru af sömu gerð og fyrir voru en þó með led lýsingu og litaskjám. Þær eru einnig búnar liftum sem þýðir að hægt verður að stilla hæðina á þeim fyrir liggjandi loftriffill og loftriffill í hnéstöðu.
Erum við virklega spennt fyrir þessu og eru okkar tæknimenn að læra á og finna bestu leiðina til að setja nýju brautirnar upp.
Þetta þýðir að við getum fljótlega verið komin með 5 brautir með skjá og svo seinna ættu að vera 10 brautir í boði.