Síðast liðinn þriðjudag undirritaði formaður Skotíþróttafélagsins Skyttur undir samstarfssamning við Rangárþing eystra til þriggja ára.
Samningurinn felur í sér að styðja við áframhaldandi uppbyggingu á barna- og unglingastarfi í skotíþróttum. Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag og er þetta liður í að efla framboð og uppbyggingu á íþróttum í samfélaginu.
VIð erum gríðarlega spennt að halda áfram uppbyggingu á starfinu okkar.