Byrjað var að reisa riffillhúsið í síðustu viku og gekk vel. Unnið verður við það og er stefnt að því að klára að loka því á næstu dögum og klæða það í sumar.
Til hefur staðið að þegar húsið verður klárt verða greidd æfingagjöld í húsið í formi mánaðargjalds til að standa undir rekstri og betrumbótum á riffillvellinum.
Við höfum ákveðið að bjóða strax uppá að félagsmenn geta skráð sig í áskrift en hægt verður að nýta aðstöðuna að hluta þegar búið er að loka húsinu.
Með þessu geta félagsmenn hjálpað til við að flýta fyrir því að við klárum húsið og tekið þannig beinan þátt í að klára þetta verkefni með okkur
Hægt er að byrja áskrift með því að smella hér.