Búið er að setja upp vefmyndavél á skotæfingasvæðinu sem uppfærir stillimynd á mínútu fresti. Myndin sést á hægri valmynd og hægt er að smella á hana til að sjá hana í fullum gæðum. Þannig er hægt að sjá aðstæður á skotsvæðinu og vonandi kemur fljótlega eitthvað inn á myndina sem getur sýnt betur hvernig vind er háttað eins og fánastöng eða vindpoki. Ekki verður sett upp streymi að svo stöddu en það er þó möguleiki á því í framtíðinni.