Aðalfundur Skotfélags Skyttur
Fundur er settur 16.02´17
Mættir eru 8 félagsmenn, þar af 4 stjórnarmenn.
Lesið var yfir fundargerð síðasta árs.
Skýrsla Stjórnar
Fjöldi félagsmanna virðist enn vera að aukast en tæpir 80 félagsmenn hafa greitt félagsgjöld .
64 skotpróf fyrir hreindýraveiðar voru tekin á árinu.
Voru haldin tvö skotmót á árinu. Annarsvegar Gæsaskyttumótið 2016 haldið á svæðinu og var það fyrsta mót sinnar tegundar hjá okkur . þótti það lukkast vel.
Einnig var haldið Landsmót í 300 m Riffli og kepptu 4 í því móti. STÍ hefur óskað eftir því að félagið haldi mót aftur 2017 og var það samþykkt.
Fenginn var þjálfari til að vera með námskeið í skeet og leirdúfuskotfimi og gekk það mjög vel. Nokkur ásókn var á leirdúfuvöllinn. Einnig hélt Arnór Óli frá Skotreyn fyrirlestur um haglabyssuskotfimi.
Hvað framkvæmdir varðar þá má nefna að brunnur var settur niður, og það var nokkuð mál en hafðist að lokum með hjálp tveggja verktaka. brunnurinn er 5 m djúpur og síðasta haust mældist dýpt vatns vera 2.7 m. einnig var klárað að tengja vatnslagnir innanhúss og aðeins er eftir að tengja dælu og setja ofan í brunn.
Var vefsvæði fært til annars Þjónustuaðila og mun það spara töluverðan kostnað til næstu þriggja ára.
Ný heimasíða félagsins leit dagsins ljós og mun fleiri upplýsingar koma þarna inn um viðburði og annann fróðleik sem tengist félaginu.
Eins var lagað hlið að svæðinu og það fært
Refanefnd
Líklega um 35 refir sem lágu eftir þetta ár. Ekki var komist að Heklubæjum og er það eitthvað sem þarf að ráðast í á þessu ári.
Skammbyssunefnd
Einn dagur var skipulagður í skotæfingar þar sem einn mætti.
Skammbyssan sem er í eigu félagsins er í yfirhalningu og planið er að uppfæra hana og fá aðra.
Færa sig yfir í Berettu
Riffilnefnd
Ekkert marktækt.
Aðeins talað um að það þurfi að klára manir og fleira.
Reikningar
Farið var yfir reikninga. Og þeir Samþykktir einhljóða.
Árgjald
Haldið óbreytt.
Samþykkt einhljóða
Lagabreytingar
Breytingatillaga 1
Breyting á 1. gr.
1. mgr. breytist og verður svohljóðandi:
Nafn félagsins er Skotíþróttafélagið Skyttur.
Jafnframt breytist nafn félagsins hvar sem þar stendur í lögunum í samræmi við fyrrgreinda breytingu.
Breytinging felur í sér nafnabreytingu á félaginu til með það að leiðarljósi að undirstrika að um íþróttafélag sé að ræða. Skotfélagið Skyttur verður Skotíþróttafélagið Skyttur.
Breytingatillaga 2
Breyting á 4. gr.
2. - 4. mgr fellur úr gildi.
Í stað kemur eftirfarandi texti:
Félagsmenn undir 18 ára aldri greiði ekki félagsgjöld.
Eftirfarandi texti fellur út lögum:
"Auk árgjalds skal hver nýr félagsmaður greiða inntökugjald sem ákveðið skal á aðalfundi og skal inntökugjaldið greitt um leið og inntökubeiðni er lögð fram. Nýr félagsmaður skal ekki greiða inntökugjald og ekki árgjald fyrr en á sínu 18. ári. Nýr félagsmaður þarf ekki að greiða inntökugjald sé maki hans fyrir í félaginu. "
Greinin mun hljóða svo eftir breytingu:
"Félagsmenn skulu greiða árgjald til félagsins og skal upphæð þess ákveðin á aðalfundi. Gjaldagi árgjalda er 15. apríl og greiðist þá árgjald fyrir það ár. Félagsmenn undir 18 ára aldri greiði ekki félagsgjöld. Greiði félagsmaður ekki árgjald innan tveggja mánaða frá útgáfu innheimtuseðla og eigi jafnframt ógreitt árgjald sitt frá fyrra ári, skal taka hann af félagaskrá, nema meirihluti stjórnar ákveði annað með hliðsjón af sérstökum aðstæðum. Hafi félagsmaður ekki greitt áfallið árgjald sitt fyrir aðalfund missir hann atkvæðisrétt og kjörgengi á þeim fundi ásamt öðrum félagsréttindum. Hafi félagsmaður verið langdvölum utan félagssvæðis, er stjórninni heimilt að fella niður árgjald hans. Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og miðast við áramót."
Búið er að fella niður inntökugjaldi og því ekki þörf á því að hafa ákvæði um það í lögunum.
Stjórn skotfélaginsins er eftirfarandi
Magnús Ragnarsson Formaður
Haraldur Gunnar Helgason Varaformaður
Bjarki Eiríksson Gjaldkeri
Erlingur Snær Loftsson Ritari
Kristinn Valur Harðarson Meðstjórnandi
Guðmar Jón Tómasson Varamaður
Jón Þorsteinsson Varamaður
Stjórn Helst óbreytt og var hún samþykkt einhljóða
Nefndarmenn allir samþykktir áfram einhljóða.
Varamaður endurskoðunar var kosinn Samúel Jóhann Guðmundsson
Önnur mál.
Talað var um hvar og hvort við gætum sótt um styrki til ÍSÍ vegna vegarins.
Hvernig erum við að trekkja að félagsmenn og mennhvattir til að breiða út.
Hvar eigum við að byggja upp til að trekkja félagsmenn að. Talað um að koma upp skothúsi fyrir riffilbraut það myndi strax hafa áhrif. Skammbyssu eignin á klárlega eftir að trekkja að.
TAlað um að skoða t.d. kvennakvold. Styrktarmót að einhverju tagi. Þannig er hægt að fá fríar auglýsingar og umtal í sama veifi.
Spurt er hvar er gámurinn.
Þarf að koma honum upp. Næsta mál er einfaldlega að steypa niður fasta punkta. Stefna tekin á að koma honum niður með vorinu. Grafa holur við hornin og steypa platta og jafnvel sjóða hann fastann við.
Vakin athygli á að ath. Leigusamninginn sem varðar veginn. Eigendaskipti hafa orðið ser stað á Minna-hofi og þarf að skoða það.
Talað um að bæta sýnileika á hvar skal beygja til að komast upp á svæði. Skilti niður við veg. Ritari tekur að sér að skoða skiltamál
Talað um skothúsmálin. Þarf að fara að skoða að nálgast teikningar, af svipuðum húsum.
Vettvangsferðir planaðar þetta er eitthvað sem þarf alvarlega að skoða og framkvæma. Með vettvangsferðum er hægt að afstýra mistökum í byggingum.
Talað um að félagsmönnum yrði gefinn kostur á að halda mót, og vera semsagt í forsvari. Ef þú ert með hugmynd, þá sérð þu sjálfur um mótið.
Þarf að Skoða gluggana í húsinu...
Rætt um nýja verðskrá þar sem hægt væri að leigja svæðið út til einstaklinga sem myndu vilja koma með hópa.