Fundargerð fyrsta fundar mótanefndar þann 11.04.2021
Formaður nefndarinnar er Jóhann Þórir Jóhannsson, einnig eru formenn annara fastanefnda félagsins, þ.e. riffilnefnd, haglanefnd og skammbyssunefnd. Formaður riffilnefndar er Bjarki Eiríksson, Formaður haglanefndar er Einar Þór Jóhannsson og formaður skammbyssunefndar er Magnús Ragnarsson
Mættir eru: Bjarki, Einar Þór, Magnús og Jóhann
Jóhann setur fund
Rætt um hvað stefnt er á að gera í sumar. Í ljósi Covid er erfitt að tímasetja og ákveða dagsetningar er nenfdin ætlar að setja saman drög að mótaskrá. Ákveði að gera sameiginlega vinnuskrá í skýi til að setja saman drögin. Horft til mótaskrár STÍ
Stefnt á að senda út tölvupóst til iðkenda um starf nefndarinnar og hverjir eru í hvaða nefnd svo fólk geti haft samband ef hefur góðar hugmyndir eða vilja koma að mótum. Einnig að koma að starfi nefnda
Stefnt að því að funda aftur 18.04.21 og þá verði komin drög að móta og æfingaskrá fyrir sumarið.