Námskeið í leirdúfuskotfimi kvenna
Tveggja daga námskeið fyrir byrjendur og lengra komna í skotfimi með haglabyssu. Dagný Hinriksdóttir, margfaldur íslandsmeistari í "skeet" skotíþróttinni verður leiðbeinandi og mun kenna verklega kennslu í að skjóta á leirdúfur með haglabyssu. Skeet er ólympísk skotgrein og verður farið í grunnatriði í skotfimi og fá þáttakendur leiðsögn við skotfimina. Einnig verður kennsla í fyrirlestrarformi þar sem farið verður í gegnum byssuna, skotin, regluverk í kringum skotgreinina og upplýsingar um íþróttastarfið á íslandi ásamt öðru sem nýtist þátttakendum.
Markmið námskeiðs er að þátttakendur öðlist þekkingu á öllu er viðkemur haglabyssu skotfimi, haglabyssum og búnaði tengdurm því, að þeir getir kynnt sér hvar mót og æfingar eru haldnar og hvað þarf til að halda áfram að keppa eða skjóta sér til yndisauka. Innifalið eru skot, leiga á byssu og léttar veitingar. Hver þáttakandi skýtur um 150-200 skotum á námskeiðinu.
Yfirþjálfari: Dagný Hinriksdóttir
Þjálfari: Magnús Ragnarsson
ATH að EKKI er gerð krafa um byssuleyfi til að taka þátt og er námskeiðið æltað konum 20 ára og eldri. Lágmarksfjöldi á námskeiðið er 8 og hámarksfjöldi er 12
Skráning á námskeiðið er hér: Sportabler | Vefverslun
Facebook viðburður hér: Kvennanámskeið í leirdúfuskotfimi | Facebook