Æfing fyrir ungliða og unglinga á Laugalandi. Verðum með laser byssur og loftbyssur fyrir hópana. Nánari upplýsingar koma hér inn í vikunni.
Ungliðar munu æfa liggjandi stöðu með riffli og liggjandi stöðu með skammbyssu. Við munum læra á miðun og sigti. Einnig förum við yfir öndun en aðallega að hafa gaman.
Unglingarnir munu æfa loftgreinarnar. Þar sem við erum með takmarkað magn af byssum munum við fara yfir smá fræðslu um greinarnar og reglur meðan beðið er eftir að komast að :)