Á aðalfundi skal stjórn félagsins gefa skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu starfsári og leggja fram endurskoðaða reikninga félagsins. Auk þess eru störf aðalfundar þessi:
Fundarsetning
Fundarstjóri kosinn
Fundarritari kosinn
Fundargerð síðasta aðalfundar lesin
Skýrsla stjórnar
Nefndir gera grein fyrir störfum sínum
Endurskoðaðir reikningar lagðir fram
Umræður um skýrslur. Afgreiðsla reikninga
Árgjald ákveðið
Lagabreytingar
Stjórnarkosning samkvæmt 7. gr
Kosning formanna fastanefnda
Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara
Önnur mál
Fundargerð lesin
Fundarslit
Einfaldur meirihluti ræður úrslitum, nema um lagabreytingar sé að ræða, en þá þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða. Aðalfundur getur með 2/3 atkvæða viðstaddra leyft að taka fyrir mál, sem komið er fram, eftir að dagskrá fundarins var auglýst.
Boða skal til aðalfundar á tryggilegan hátt með tilkynningu til allra félagsmanna með að minnsta kosti tveggja vikna fyrirvara. Dagskrá skal fylgja aðalfundarboði auk tillagna til lagabreytinga ef einhverjar eru. Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórn í síðasta lagi einni viku fyrir boðaðan aðalfund.. Formaður félagsins skal setja aðalfundi og stjórna þeim eða tilnefna fundarstjóra. Atkvæðisrétt á fundum félagsins hafa allir félagsmenn sem eru skuldlausir við félagið.