Skotíþróttafélagið Skyttur er að skoða aðstöðu í samvinnu við Rangárþing-eystra á Hvolsvelli fyrir loftgreinar. Verður þá hægt að halda æfingar í loftskammbyssu og loftriffillgreinum ásamt mögulega sömu greinum með laser. Hentar það einstaklega vel með ungmennastarfi þar sem þessar greinar eru hentugar fyrir ungmennagreinar. Félagið hefur til umráða nokkrar skotgildrur fyrir pappírsskífur og 4 rafeinda skotgildrur sem eru ætlaðar fyrir loftgreinar. Aðstaðan sem við höfum skoðað hentar einstaklega vel fyrir þetta og erum við mjög spennt fyrir þessu.
Munum við upplýsa félagsmenn og forráðamenn þegar við fáum frekari upplýsingar.