Á landsmóti í 50m liggjandi riffli sem haldið var í dag af Skotíþróttafélagi Kópavogs bætti Óðinn Magnússon eigið Íslandsmet í flokki drengja. Skaut hann 526,5 stig. Setti hann fyrra metið fyrir 3 vikum og skaut þá 501,2 stig svo um töluverða bætingu er að ræða.
Gaman var að sjá að ásamt Óðni voru tvær stúlkur að keppa í unglingaflokki. Við fögnum því að sjá unga iðkendur mæta á mótin.