Stjórnarfundur skotíþróttafélagsins Skyttur 10.10.22 haldinn á Teams.
Mættir eru: Magnús Ragnarsson, Jóhann Þórir Jóhannsson, Viðar Rúnar Guðnason
Fundardagsskrá:
1.
Skýrsla þjálfara um ungliðastarfið
a.
Magnús og Viðar eru með vikulegar æfingar fyrir 6-14 ára. Eru æfingarnar til skiptis á Hvolsvelli og Hellu á mánudögum kl. 17. Við tökum á móti 12 iðkendum en teljum það hámark í einu. Það er mikil eftirspurn og er þónokkur fjöldi á biðlista. Mæting hefur verið nokkuð góð. Við erum með 5 riffla og eina skammbyssu í láni frá Skotíþróttafélagið Kópavogs og hefur það bjargað okkur algjörlega. Fyrstu tvær voru að koma og voru settar í notkun í dag. Stefnt verður að því að vinna með tvo hópa og jafnvel þrjá eftir áramót í þessum aldursflokki, þ.e. yngri og eldri hópur í 6-14 ára. Það er alveg tilefni til að þrískipta líka en það fer eftir getu félagsins uppá tíma og annað. Jafnframt hefjum við æfingar með 15-20 ára þegar við verðum komin með loftaðstöðu. Félagið á þegar tvær loftskammbyssur og þriðja er væntanleg. Þá þarf að fara í kaup á loftrifflum en við freistum þess að byrja með lánsriffla.
2.
Gjaldkeri fer yfir fjárhag félagsins.
a.
Félagið stendur ágætlega og hefur rými til að kaupa einhvern búnað ásamt vinnu og efni í sökkli. Félagið hefur fé uppá rúma miljón til að setja í uppbyggingu út þetta ár.
3.
Formaður leggur til kaup á tveimur laserrifflum til viðbótar. Áætlaður kostnaður um 500.000 með aukabúnaði.
a.
Samþykkt samhljóma
4.
Formaður fer yfir framkvæmdir á leirdúfuvelli og hvar hann stendur.
a.
Eftir á að setja upp eitt ljós á leirdúfuhúsin en þau þurfa bæði að vera tengd. Einnig á eftir að bora fyrir útiljósi á turni. Stefnt verður á vinnudag fljótlega til þess. Markmiðið er að koma hinu ljósinu upp, setja útiljós á húsin og ljós inn í þau sem verða tengd við tímarofa. Verið er að setja upp Shelly stýringu sem gerir þetta kleift.
5.
Skeet vesti kynnt. Sportvík stefnir á að gera pöntun fyrir jól og því kannað hvort stefna eigi að því að vera með í þeirri pöntun
a.
Lagt til að stærðartöflur verði birtar á heimasíðu félagsins og auglýst í pósti að hægt verði að panta
b.
Samþykkt
6.
Farið yfir fatamál varðandi íþróttafatnað félagsins
a.
Formaður fer yfir málið. Það er verið að leggja lokahönd á mátun hjá félaginu en markmiðið er að koma verslun og utanumhaldi til Jako sem sér um verslunina. Verður það klárað á næstu tveimur vikum og auglýst á heimasíðu þegar það er tilbúið.
7.
Farið yfir stöðu riffillhúss. Lagt til að sett verði fjármagni í að flýta framkvæmdum þar sem ekki hefur tekist að koma upp sökkli með sjálfboðastarfi.
a.
Stjórn leggur til að gjaldkeri kanni með smiði til að aðstoða við að koma upp járngrindinn og gera klárt fyrir steypu á sökkli.
i.
Samþykkt samhljóða
b.
Formaður vinnur í því að láta klára burðaþolsteikningu en það vantaði hana í verkið. Kominn teiknari.
8.
Farið yfir launakjör þjálfara. Lagt til að tímagjaldið verði 4.500kr sem er í samræmi við þjálfaralaun annara félaga á svæðinu.
a.
Gjaldkera falið að gera launasamning við þjálfara.
b.
Samþykkt samhljóða
9.
Félagið hefur sótt um að gerast fyrirmyndafélag. Farið yfir hvað felst í því.
a.
Félagið uppfyllir flest skilyrði, en það þarf að setja saman gæðabók og höfum við forskrift að því. Þessi vinna verði unnin fram á vorið og stefnt að því að klára hana fyrir það.
10.
Lagt til að Bríet Berndsen verði áheyrnafulltrúi ungmenna. Hún er virkur iðkandi í unglingaflokki og gaf kost á sér í embættið.
a.
Samþykkt samhljóða.
11.
Staðan á loftsal. Ekki komin dagssetning á hvenær við getum byrjað að setja hann upp en verður það gríðarlega mikilvægt fyrir unglingastarfið.
a.
Formanni falið að afla frekari upplýsinga um framgang verkefnisins.
12.
Farið yfir styrkumsóknir sem búið er að sækja um.
a.
Sótt var um styrk til Rannís vegna uppfærslu á skeet vellinum, Einnig sótt um til Krónunnar vegna sama verkefnis en stefnt á öflugt unglingastarf í skeet næsta vor/sumar. Einnig var sótt um styrk í verkefna sjóð HSK á móti þremur þjálfaranámskeiðum ÍSÍ.
b.
Sótt var um aukastyrk hjá sveitarfélögunum þremur en félagið er ekki með samstarfssamning við sveitarfélögin eins og önnur félög í sýslunni. Félagið hefur óskað eftir því að gera sambærilegan samning við sveitarfélögin og hefur fengið þau svör frá RE og RY að það sé verið að fara í þá vinnu að endurskoða samninga við íþróttafélög. Þangað til er félagið ekki með samning og á þeim forsendum var sótt um auka styrki svo félagið geti áfram haldið uppbyggingu áfram og æfingum í ungmennastarfi. Ekki hafa komið svör frá Ásahreppi.
13.
Önnur mál
a.