Skip to main content
Forsíða
Íþróttafélagið Skyttur
SKS Rangárvallarsýslu

Main navigation

  • Um félagið
    • Merkið
    • Fundargerðir
    • Leyfi
    • Verðskrá
    • Gerast félagsmaður
    • Búningar
    • Hafa samband
    • Stjórn
  • Starfsemi
    • Ungmennastarf
    • Æfingasvæðið
    • Allir viðburðir
    • Mótaskrá
    • Æfingar
    • Bogfimi
  • Fróðleikur
    • Skotgreinar
    • Styrktaraðilar
    • Hreindýrapróf
    • Íþróttasambönd
    • Spjallsvæðið
    • Önnur félög
  • Lög og reglur
    • Lög félagsins
    • Öryggisreglur
    • Siðareglur
    • Persónuverndarstefna
    • Byssuleyfi

Stjórnarfundur 17.09.2026

Stjórnarfundur hjá Skyttur 17.09.2026 haldin á Teams kl. 20:00

Mættir eru Magnús, Rakel, Jóhann, Guðmundur, Eva Maria

Fundardagsskrá:

  1. Staðan í dag
    1. Farið var yfir stöðuna. Staða á höfuðstól góð, en hún er á svipuðu reiki og síðustu áramót. Því þarf aðeins að hægja á framkvæmdum í bili. En búið að er að fjárfesta gríðarlega í innviðum á þessu ár á ýmsum sviðum.
    2. Píludeildin hefur verið að taka hópa uppá síðkastið og hefur það reynst vel og skilað tekjum
    3. Von er á hóp í loftsalinn einni.
    4. Rætt um launamál. Núna fá þjálfara í unglinga og barnastarfi greidd þjálfaralaun en rætt um að ákveða stefnu hjá félaginu en eðlilegt þykir að greidd sé einhverskonar umbun þegar félagsmenn taka að sér verkefni þar sem greitt er fyrir þjónustuna. Jafnvel eðlilegast að það sé þá bara í tímavinnu en hinn kosturinn væri föstu krónutala. Ákveðið að píludeild komi með tillögur til stjórnar um fyrirkomulag.
    5. Öryggisúttekt komin á skothúsið og búið að flytja mold á svæðið til að setja á skotbraut og undirbúa undir þökulögn. Einnig kominn mulningur til að setja í kringum húsið. 
    6. Unglinga og barnastarf hafið í skotgreinum en Rakel er með hópa þar og er nokkur ásókn og strax farið að verja krefjandi vegna aðstöðuleysis. Sama í pílunni. Tvær æfingar í viku fyrir þær æfingar.
  2. Hvað er búið
    1. Á árinu hefur verið farið í mikla uppbyggingu innviða á mörgum sviðum. Hæst ber að nefna píludeildin sem var stofnuð á árinu og hefur byggt upp fullbúna aðstöðu með gríðarlega metnaðarfulla dagssrká, mót, tekið á móti hópum og heldur stóra viðburði. Erum við virkilega stolt af starfinu hjá deilinni. Þetta hafðist með mikill elju við söfnun styrkja og sjálfboðavinnu.
    2. Félagið hélt opið innanlandsmót í íþróttahúsinu á Hvolsvelli í vor og var farið í fjárfestingar við það, til að hægt væri að halda það með kaupum á búnaði og smiða vegg fyrir íþróttahúsið. Þetta býr félagið að því að geta haldið svona stóran viðburð aftur með mun minni tilkostnaði. Stefn er á landsmót í apríl á næsta ári í lofgreinum í íþróttahúsinu á Hvolsvelli.
    3. Miklar framkvæmdir hafa verið í skothúsinu á Geitasandi, og var haldið Íslandsmót þar í ágúst síðastliðin. Það er komin öryggisúttekt á húsinu en það þurftir að gera töluverðar framkvæmdir til þess að það væri hægt. Einnig var farið í kaup á ýmsum búnaði til að það væri hægt eins og mælitækjum, stólum, borðum og öðru ásamt því að kaupa strandflögg og annað til að stuðla að útbreiðslu og sýnileika.
    4. Annað sem kom til er myndavéla og öryggiskerfi á Geitasandi, uppblásið píluspjald sem hefur valdið mikilli lukku, keyrsla á efni uppá svæði og svo ýmis önnur vinna á svæðinu
  3. Hvað er framundan
    1. Áframhaldindi vinna í skothúsinu, en það á eftir að klæða með járni og klára innandyra skotstjórarýmið. Einnig að klára að jarðvinna í kring um það. Það verður líklega aðeins rólegra í framkvæmdum fram yfir áramót en áhersla verður núna á það að fá fólk til að nýta húsið frekar og fjölga fólki í áskrift að húsinu.
    2. Píludeildin mun halda áfram að sinna sínum verkefnum en engin stór verkefni eða framkvæmdir framundan. Leggja til að félagið kaup grill þar sem þau eru oft að grilla á viðburðum, en einnig hefur verið grillað á Geitasandi þegar eru vinnudagar eða sérstakir viðburðir. Grill gæti því nýst öllu félaginu en gott væri að eiga gott en meðfærilegt gasgrill.
    3. Hálfgert neyðarástand er í loftsalnum þar sem félagið hefur núna beðið á þriðja ár með að fá stækkun á salnum. Hluti af salnum er notaður sem geymsla og var sent erindi á síðasta ári, sem var svarað að það ætti að fara í kostnaðargreiningu á þessu og tekið jákvætt í þetta. Núna tæpu ári seinna var sendur póstur með fyrirspurn á sveitarfélagið en því hefur ekki verið svarað, en eftir samtöl þá er sveitarfélagið jákvætt fyrir því. Það skiptir félagið gríðarlega miklu máli að ná að stækka salinn. Ef félagið fjárfesti meðal annar í stærri braut og á 10 brautir en getur bara notað 5 af þeim.


Ekki fleira gert á fundi og fundi slitið kl. 21:00

Tegund
Stjórnarfundur
Dagsetning
Fimmtudagur, september 17, 2026 - 12:00

Á döfinni

Skráningar og áskriftir

Abler

RSS feed
Skotíþróttafélagið Skyttur kt. 420409-1330 - Geitasandi, 850 Hella - Reikningsnúmer: 182-26-4204 - skotfelag[hjá]skyttur.is
Höfundarréttur © Magnús Ragnarsson.. Öll réttindi áskilin.
Powered by Drupal