Skeet létt paramótið var haldið í frábæru veðri og mættu 4 lið til keppni. Keppnin var hörð og jöfn og urðu úrslitin eftirfarandi:
Bjarki Rúnarsson og Einar Magnús Einarsson urðu í 1. sæti með 57 stig.
Arnór Óli Ólafsson og Kristinn Ingi Austmar Guðnason urðu í 2. sæti með 56 stig.
Hrafn Erlingsson og Kristján Hrafn Arason urðu í 3. sæti með 55 stig.
Nokkrir voru að keppa á sínu fyrsta móti og var þetta mikil reynsla í bankann fyrir þá.
Innanfélagsmót í Skeet-létt.
Mótið er hugsað sem skemmtimót. Keppt er eftir reglum skeet, en hraðinn er mun minni en í skeet, og skotnar eru 75 dúfur.
Mótsgjald 2.500 kr.
Félagsmenn keppa til verðlauna en það er opið fyrir gestaskráningar.
Keppt bæði í karla og kvennaflokki.
Hlífðargleraugu ásamt heyrnahlífum skylda og aðeins stálskot leyfð, 24-28. gr
Skeet-létt 2018 mótið fór fram á skotsvæðinu í dag í vægast sagt votu veðri. Voru 75 dúfur skotnar í úrhelli og roki en létu skotmenn ekki vosbúðina á sig fá og reyndu að brjóta sem flestar dúfur.
Menn voru mis sáttir með árangurinn en gaman var þó. Það mættu fimm keppendur til leiks að þessu sinni.