Bríet Berndsen keppti fyrir hönd félagsins á landsmóti í skeet um helgina á Akranesi. Bríet keppti í unglingaflokki á sínu fyrsta móti og stóð sig mjög vel. Vann hún gull í unglingaflokki stúlkna.
Bríet byrjaði að æfa skeet hjá félaginu fyrir skemmstu og er mjög efnileg í þeirri grein og á hún framtíðina fyrir sér í greininni.
Þess ber að geta að Bríet er fyrsti keppandi í skeet á landsmóti hjá Skotíþróttafélaginu Skyttum og hefur hún því brotið ákveðið blaði í sögu félagsins.