Skip to main content
Forsíða
Íþróttafélagið Skyttur
SKS Rangárvallarsýslu

Main navigation

  • Um félagið
    • Merkið
    • Fundargerðir
    • Leyfi
    • Verðskrá
    • Gerast félagsmaður
    • Búningar
    • Hafa samband
    • Stjórn
  • Starfsemi
    • Ungmennastarf
    • Æfingasvæðið
    • Allir viðburðir
    • Mótaskrá
    • Æfingar
    • Bogfimi
  • Fróðleikur
    • Skotgreinar
    • Styrktaraðilar
    • Hreindýrapróf
    • Íþróttasambönd
    • Spjallsvæðið
    • Önnur félög
  • Lög og reglur
    • Lög félagsins
    • Öryggisreglur
    • Siðareglur
    • Persónuverndarstefna
    • Byssuleyfi

Opið innanlandsmót á Hvolsvelli - Þrjú gull og silfur

Dags
11 apríl, 2026

Vel heppnað opið innanlandsmót í loftgreinunm var haldið af Íþróttafélaginu Skyttum á Hvolsvelli og var það haldið í íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli.

23 keppendur voru skráðir á mótið frá fjórum íþróttafélögum. Mótið heppnaðist vel í alla staði.

Í fyrsta sæti í fullorðinsflokki í loftskammbyssu var Rúnar Helgi Sigmarsson frá Skyttum en hann bæði varð efstur í undanúrslitum með 542 stig og vann úrslit á sannfærandi hátt eftir mjög spennandi keppni. Maria Lagou frá Skotíþróttafélagi Kópavogs var í 2. sæti ( 524 í undanúrslitum)  og Bjarki Sigfússon í því þriðja frá sama félagi ( 528 í undanúrslitum).

Í unglingaflokki í loftskammbyssu var Elín Kristín Ellertsdóttir frá Skyttum í 1. sæti með 454 stig

Í loftriffli í fullorðinsflokki hreppti Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir 1. sætið frá Skotfélagi Grundarfjarðar með 560,5 stig og var Rakel Rún Karlsdóttir frá Skyttum í 2. sæti. með 515,0 stig

Í unglingaflokki í loftriffli var Brynjar Máni Hafsteinsson í 1. sæti. Þetta var hans fyrsta mót og skaut hann 513,4 stig

Í flokki hreyfihamlaðra (SH1-P1) í loftskammbyssu varð Elís Hugi Dagsson í 1. sæti með 522 stig. Hann varð jafnframt í öðru sæti í úrslitakeppninni.

Keppt var í liðakeppni í loftskammbyssu en þar vann A-lið Skotíþróttafélags Kópavogs, en í því liði voru Bjarki Sigufússon, Maria Lagou og Adam Ingi Höybye Franksson.

Í öðru sæti hafnaði lið Skotdeildar Keflavíkur, en það samanstóð af bræðrunum Bjarna og Bjarka Sigurðssyni og svo Paula Gunnlaugsson Fric.

Í þriðja sæti var svo B-lið Skotíþróttafélags Kópavogs, en í því liði voru Jóhann Jónsson, Tatjana Jatsuk og Laura Sofia Valero Vargas.

Við erum mjög stolt af þessu móti en þetta mót hefði ekki orðið að veruleika nema með fórnfýsi sjálfboðaliða okkar, Skotíþróttafélags Kópavogs og sveitarfélaginu Rangarþingi-eystra og erum við virkilega þakklát þeim við að hjálpa okkur að koma þessu í framkvæmd. 

Við höfum núna fengið mikla reynslu og komið okkur upp búnaði til að getað haldið áfram að bjóða uppá mót í Rangárvallarsýslu í loftgreinum.

Tengt Efni
ISSF
STÍ
Loftskammbyssa
Loftgreinar
Loftriffill
Opið mót
Mynd

Á döfinni

Skráningar og áskriftir

Abler

RSS feed
Skotíþróttafélagið Skyttur kt. 420409-1330 - Geitasandi, 850 Hella - Reikningsnúmer: 182-26-4204 - skotfelag[hjá]skyttur.is
Höfundarréttur © Magnús Ragnarsson.. Öll réttindi áskilin.
Powered by Drupal