Landsmót Stí í loftgreinum var haldið 04.12.2021 í aðstöðu Skotdeildar Keflavíkur. Alls voru 16 keppendur skráðir og einn keppandi sem keppti í báðum greinum.
Magnús Ragnarsson frá Skotíþróttafélaginu Skyttunum kom sá og sigraði í karlaflokki í loftskammbyssu. Hann skaut sig úr 3. flokk í 2. flokk á skori sem var 4 stigum frá 1. flokks viðmiðinu. Í öðru sæti var Bjarki Sigfússon frá Skotíþróttafélagi Kópavogs og í þriðja sæti var svo Hannes H. Gilbert einnig í Skotíþróttafélagi Kópavogs. Karlasveit Skotíþróttafélags Kópavogs var svo í fyrsta sæti í liðakeppninni með 1502 stig. Í Kvennaflokkinum sigraði Jórun Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 542 stig og í öðru sæti var Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir Skotgrun með 498 stig.