Um síðustu helgi sendu Skyttur lið á landsmót í staðlaðri skammbyssu og sport skammbyssu.
Í staðlaðri skammbyssu sem var haldið í Egilshöll 07.febrúar hafnaði lið Skyttna í 2. sæti í liðakeppni.
Í sport skammbyssu sem var haldið í Digranesi 08. febrúar hafnaði lið Skyttna í 3. sæti í liðakeppni og Magnús Ragnarsson hafnaði í 2. sæti í einstaklingskeppni með 525 stig.
Úrslit
Í liðinu voru Magnús Ragnarsson, Guðbjörg Viðja Antonsdóttir og Bjarki Rúnarsson. Bæði Viðja og Bjarki voru að keppa á sínu fyrsta móti bæði í sport skammbyssu og staðlaðri með mjög góðum árangri en þau hafa bæði keppt í loftbyssu áður.