Skip to main content
Forsíða
Íþróttafélagið Skyttur
SKS Rangárvallarsýslu

Main navigation

  • Um félagið
    • Merkið
    • Fundargerðir
    • Leyfi
    • Verðskrá
    • Gerast félagsmaður
    • Búningar
    • Hafa samband
    • Stjórn
  • Starfsemi
    • Ungmennastarf
    • Æfingasvæðið
    • Allir viðburðir
    • Mótaskrá
    • Æfingar
    • Bogfimi
  • Fróðleikur
    • Skotgreinar
    • Styrktaraðilar
    • Hreindýrapróf
    • Íþróttasambönd
    • Spjallsvæðið
    • Önnur félög
  • Lög og reglur
    • Lög félagsins
    • Öryggisreglur
    • Siðareglur
    • Persónuverndarstefna
    • Byssuleyfi

Úrslit Skeet-létt 2018

Skeet-létt 2018 mótið fór fram á skotsvæðinu í dag í vægast sagt votu veðri. Voru 75 dúfur skotnar í úrhelli og roki en létu skotmenn ekki vosbúðina á sig fá og reyndu að brjóta sem flestar dúfur.

Menn voru mis sáttir með árangurinn en gaman var þó. Það mættu fimm keppendur til leiks að þessu sinni.

Úrslitin urðu eftirfarandi:

Ný braut fyrir hreindýraskotpróf

Nýr graspallur fyrir hreindýraskotpróf settur upp. Gamli pallurinn var orðinn nokkuð lúinn og fullur af sandi. Með þessu verður einnig hægt að æfa af pallinum og af borðunum á sama tíma þar sem pallurinn er á sömu skotlínu en ekki fyrir framan. Túnþökuþjónustan ehf styrkti okkur um túnþökur í pallinn.

Vinningshafar BR50 2018 skyttur

BR50 mótið 7. júní 2018

BR50 mót var haldið 7. júní síðastliðinn á skotvæðinu. Mættu 7 keppendur til leiks og þar af fjórir frá Skotgrund Skotíþróttafélagi Snæfellsnes. Veður var gott en vindur var nokkuð krefjandi eins og keppendur fengu að finna.

Voru þrír riðlar enda erum við bara með þrjú borð eins og er.

Leikar fóru þannig að Heiða Lára sigraði mótið með 224 stig,  Eyjólfur Sigurðsson var í öðru sæti með 213 stig og Pétur Már var í þriðja sæti með 190 stig.

Úrslit mótsins voru eftirfarandi í stigaröð:

Félagsgjöld 2018 send út

Núna er búið að senda út félagsgjöld fyrir árið 2018. Þau eiga að birtast í netbanka og einnig berast með pósti. 

Ef krafa berst ekki getið þið haft samband við félagið. Einnig ef þið viljið fá kröfu þá getið þið skráð ykkur í félagið hér á síðunni undir Fróðleikur.

Árgjaldið er 10.000 kr.

Skilti

Nýtt skilti sett upp

Nýtt skilti hefur verið sett upp við afleggjarann niður að æfingasvæðinu okkar. Núna ætti ekki að vera erfitt að finna svæðið, en við höfum fundið fyrir því að fólk hefur stundum átt erfitt með að finna afleggjarann, enda hefur hann ekki verið merktur og lítt áberandi.

Sveitarstjórn Rangárþings-Eystra styrkti Skotíþróttafélagið Skyttur um þetta skilti og færum við þeim bestu þakkir.

Skiltið var framleitt af Fagform og sá Vegagerðin um uppsetingu á skiltinu.

 

Félagið aðili að Bogfiminefnd ÍSÍ

Skotíþróttafélagið Skyttur hefur bætt við sig bogfimi sem einni af greinum sem stundaðar eru hjá félaginu. Núna er félagið orðið aðili að Bogfiminefnd ÍSÍ og þar með viðurkennt bogfimifélag.

Í haust var haldið námskeið í samvinnu við Indriða Ragnar Grétarsson, bogfimiþjálfara, og tókst það vel til. Í framtíðinni má því búast við eflingu á þessar grein innan félagsins. 

Vefmyndavél

Vefmyndavél komin upp á svæðinu

Búið er að setja upp vefmyndavél á skotæfingasvæðinu sem uppfærir stillimynd á mínútu fresti. Myndin sést á hægri valmynd og hægt er að smella á hana til að sjá hana í fullum gæðum. Þannig er hægt að sjá aðstæður á skotsvæðinu og vonandi kemur fljótlega eitthvað inn á myndina sem getur sýnt betur hvernig vind er háttað eins og fánastöng eða vindpoki. Ekki verður sett upp streymi að svo stöddu en það er þó möguleiki á því í framtíðinni.

 

Félagið komið með getraunanúmer

Skotíþróttafélagið Skyttur er komið með getraunanúmer hjá getspá.

Númerið okkar 795

Því hvetjum við þá sem eru að tippa að skrá okkur sem sitt lið á 1x2.is eða lotto.is

 

Bogfiminámskeið helgina 16.-17. september

Velheppnað bogfiminámskeið var haldið helgina 16.-17. september þar sem Indriði Ragnar Grétarsson kenndi. 12 manns skráðu sig á námskeiðið og var mikil ánægja með það í alla staði. Var námskeiðið haldið í íþróttahúsinu á Hellu.

Er þetta liður í að koma á fót og byggja upp starf í þessar grein í héraðinu en bogfimi hefur ekki verið stunduð á svæðinu hingað til.

50m battar

Viðbót á riffilbraut

Búið er að bæta 50 metra battana á riffilvellinum og eru núna þrír battar með bakstoppi og vindflöggum. Býður þetta uppá góða aðstöðu fyrir 50m liggjandi riffill og 50BR greinar ásamt fleirru. Næstkomandi þriðjudag verður innanfélagsmót í 50BR þar sem þrír geta keppt í riðli. 

Pagination

  • First page
  • Previous page
  • …
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Page 6
  • Page 7
  • Page 8
  • Page 9
  • Page 10
  • Næsta síða
  • Síðasta síða

Á döfinni

Skráningar og áskriftir

Abler

RSS feed
Skotíþróttafélagið Skyttur kt. 420409-1330 - Geitasandi, 850 Hella - Reikningsnúmer: 182-26-4204 - skotfelag[hjá]skyttur.is
Höfundarréttur © Magnús Ragnarsson.. Öll réttindi áskilin.
Powered by Drupal